Tuesday, June 19, 2012

Cupcakes bakstur

Jæja nú tók ég mig til og  bakaði í dag með litlu systur,  ætlaði að baka mokkacupcakes en Elva er nú ekki alveg fyrir kaffikökur svo við fórum í súkkulaðikökurnar :)

Notaðist ég við uppskriftina sem ég hef postað hérna áður - læt hana samt fylgja
 150 gr sykur
150 gr púðursykur
125 gr smjör lint
260 gr hveiti
2 stk egg
1/2 tsk salt
1 tsk matarsóti
1 tsk lyftiduft
40 gr kakó
2 dl mjólk

Þeyta sykur, púðursykur og smjör saman þangað til er orðið mjög létt - bæta svo einu eggi við og halda áfram að þeyta. Svo bæta við þurrefnunum við hægt og rólega og að lokum mjólkinni. Setja í möffins form og baka við 180°C í 20 mín

Kremið:
200 gr smjör
4 1/2 dl flórsykur
1 stk eggjarauða
1 tsk vanilludropar
1 dl kakó

Svo notuðum við sykurmassaafgang sem við áttum og Elva bjó til svona hringi og settum ofan á kremið :) 

Verið að sprauta súkkulaðismjörkreminu á kökuna :)
Jæja búið að setja kremið á og sykurmassahringina á 

Kökurnar 

Here you go my darlings :)

Svo væri voða gaman að vita hverjir væru að lesa með smá kommentum hehe :) 

Jóhanna Sigríður


3 comments:

  1. =) Ég les .. vúhú! Langar að Esther mín litla fari að sofa betur á daginn svo ég geti nú farið að baka meira. Skemmtilegt blogg ;)

    ReplyDelete
  2. Ohh wohoo gaman að heyra að þið mæðgur lesið og fylgist með :) Þegar ég kem hef ég muffinskvöld fyrir ykkur hjúkkulingana :)

    ReplyDelete
  3. ég les líka, svo gaman hvað þú ert duglega að blogga um ýmislegt :)

    ReplyDelete