Wednesday, May 16, 2012

Bökunardót og Noregur

Jæja ég skellti mér í Kvadrat með litlu systir það var víst einhver miðnæturopnum svo maður gat víst ekki misst af því. En þetta er svona það helsta sem ég keypti. 



2 stílabækur með hvítum blöðum þ.e. engum línum. Ætla að gera eina að matreiðslubók og hina að myndaalbúmi. Ætla að reyna að föndra eitthvað í þessu en sjáum hvernig það gengur - i´ll keep you posted

Keypti 8 stykki af gelmatarlitum - sem ég get notað í krem á cupcakes og einnig þegar ég bý til sykurmassa :)

Þetta eru möffinsformin sem ég keypti - eru stór og fín svo ég get nokkrar stórar en einnig keyptir ég minni cup cakes forms

Þetta eru svona stútar á rjómasprautu/kremsprautu svo það getur komið flott munstur á cupcakes mitt

Svo grunnatriðið í að búa til sykurmassa - sykurpúðar

En ég gat ekki staðist HM og kíkti smá og nældi mér í eitthvað bleikt og fallegt
Keypti þetta pils nema það er í bleikum lit of course

Svo keypti ég þetta bikiní og ég sver ég mun líta svona vel út í lok sumars hoho

En annars af Noregi - smá fun facts sem ég var að fatta.
  • Norðmenn vilja alls ekki taka aukavaktir eða allavega mjög fáar. Því finnst þeim mjög undarlegt að ég sé alltaf til í að taka aukavaktir. Einnig þykir ekkert sjálfagðara að taka sér frídag þegar hentar ef maður vill lengra frí 
  • Að línuskauta er jú jú töff hér en þá ekki nema að þú sért einnig með skíðastafi í leiðinni.
  • Það eru mjög fáir sem hjóla um án þess að vera í svakalegum reiðhjólafötum og á þvílíkum hjólum. Mætti halda að þeir væru að fara að taka þátt í Tour de France
  • Eins er borðað brauð í nær öll mál hjá Norðmönnum - nema kannski middag. Það þykir bara sjálfsagt að borða brauð í kvöldmat alla vikuna 
Kv. Frá Norge



1 comment:

  1. Shit, ég er svo sammála með brauðið. Það er betra að passa sig. Ég gat ekki snert brauð í ár eftir Noregsdvölina mína ;) Rosalega ertu dugleg að blogga. Haltu þessu áfram, þú átt dyggan áðdáenda hérna á klakanum með litla bleika dúllu á brjósti

    ReplyDelete