Tuesday, August 28, 2012

Mexíkósk kjúklingasúpa

Ég nældi mér í flensu um helgina og ákvað í gær til þess að losna við hana að elda mexíkóska kjúklingasúpu og einnig búa til guacamole og nota til þess nýja töfrasprotann frá pabba og Önnu :)

Fékk ég þennan og er hann alveg æðislegur og virkar líka svo vel. Notaði ég hann bæði í að gera guacamoleið og einnig að mauka súpuna því ég vildi fá svona silkimjúka áferð
En ég ætla að gefa ykkur uppskriftina af súpunni minni :) 

Skar niður 2 gulrætur, 1 lauk, 1 gula papriku, 1 rauða papriku 1 rautt chilli aldin og 4 hvítlauksrif, 2 stór og 2 lítil 
Ég steykti laukinn fyrst og hvítlaukinn upp úr 2 msk af olíu þangað til að laukurinn var orðin glær og bætti ég þá hinu grænmetinu við. Kryddaði ég með salti, pipar, taco kryddi, óregano, timjan, reyktri papriku kryddi og karrí. Bætti ég svo út í rúmlega 1 L af vatni og 2 kjúklingateningum og lét malla í smá stund

Síðan setti ég alveg 1/2 af chili sósu frá HEINZ en hún er algjörlega ómissandi. Síðan var það salsasósa en ég átti einmitt afgang af svona stórri krukku en ætli þetta hafi ekki verið svona 1 lítil krukka af salsasósu. Hrærði ég þessu saman við. Ég ætlaði að bæta út í tómatpúrru og líka niðursoðnum tómötum en ég gleymdi því að ég átti ekki dósaopnara þannig ég sleppti því bara

Notaði ég þá í staðinn 4 venjulega vel þrosakaða tómata og bætti út í og lét súpuna malla á lágum hita í rúman klukkutíma (því lengur því betra finnst mér )

Svo var komið að kjúklingnum enda mexíkósk kjúklingasúpa. Ég átti bra 1 kjúklingabringu - hélt að til væru fleiri þannig ég notaði kjúklingaleggi sem ég átti. Grillaði þá inn í ofni og skar svo allt kjötið af þeim og setti í súpuna og hún varð alls ekki verri af þessu fína kjöti af beinunum 

Svona leit þá súpan út í lokin og setti ég ost, snakk og sýrðan rjóma út í og Voila. Var ég mjög ánægð með útkomuna en pabbi hans Davíðs og systir komu í mat og kláruðu þau 2 súpuskálar hvort

En hér er þá uppskriftin í heildsinni 
1 laukur
1 rauð paprika
1 gul paprika
1 rautt chilli aldin
2 gulrætur (stórar)
4 hvítlauksrif (ég notaði 2 stór og 2 lítil, en 2 hvítlauksrif ættu að nægja)
4 tómatar
salt og pipar, 
1 msk taco krydd
1 tsk reykt paprikukrydd
1 tsk karrý
2 tsk oregano
1 tsk timjan
(ég notaði bara þau krydd sem voru til í skápnum)
2 kjúklingatengingar
1 L vatn 
1/2 krukka af Chili sósu frá Heinz
1 lítil krukka af taco/salsa sósu
Berist svo fram með doritos snakki, rifnum osti og sýrðum rjóma

Svo víst ég var að elda svona mexíkóst ákvað ég að gera Guacamole enda voru avókadóin mín vel mjúk
Ég gerði stóran skammt enda finnst mér þetta gott og Davíð líka. Svo fannst tengdapabba þetta gott líka en hann gat engan vegin munað hvað þetta hét og kallaði þetta því Guantanamo sósa hví ekki hehe . 
4 lítil avókadó
1/2 rauðlaukur
1 chili
2 hvítlauksrif
2 tómatar
salt 
safi úr sneið af sítrónu
Hluti af hráefninu mínu - bætti við 2 litlum avókadó í viðbot

Ég setti þetta bara allt í nýja mixarann minn langaði svo að prufa og hann virkaði fullkomlega :)

XOXO Jóhanna 

Mér þætti nú vænt um smá like eða ef þið deilduð þessu :) Myndi gleðja mig svaklega hehe 






Wednesday, August 22, 2012

Eldhúsgræjur

Ég er búin að vera að horfa á Kitchenaid hrærivélar og ég er ástfangin. Jesús þetta er svo gífurlega flottar vélar og endast svo ótrúlega vel. Amma mín á ennþá sína KitchenAid hrærivél hún er síðan ég veit ekki hvenær. Mig langar í svoleiðis og það eru líka svo margir flottir litir

mamma á svona - rosa flott 

Þessi finnst mér líka ógeðslega flott 

En þessi er draumurinn - ég verð að fá mér svona bara verð. Þessi litur hrópar bara Jóhanna 

Langar líka rosa í svona blandara - eða bara blandara yfir höfuð - vantar sárlega svoleiðis

Svo vantar mig líka matvinnsluvél - hehe ég er alveg sjúk í svona eldhúsgræjur

Svo langar mig líka í töfrasprota :) Held að pabbi og Anna ætli að gefa mér svoleiðis :) Þannig ég býð spennt eftir að geta valið töfrasprota hérna heima:D 

Svo hnífasett - það er nú algjört möst. 

Svo langar mig gífurlega í þessa svuntu

Þessi er líka rosa flott !!

XXX Jóhanna








Monday, August 20, 2012

Lífið í nýju íbúðinni

Það er svo sannarlega mikið búið að gerast undanfarna daga.

Að gera allt tilbúið fyrir íbúðina - innflutningspartý - menningarnótt og svo fyrsti skóladagurinn. Maður er byrjaður á fyrsta dag á 3.árinu og mér finnst það byrja heldur snemma.

En ég ætlaði aðallega að skella inn nokkrum myndum hérna inn fyrir ykkur !!

Hér er stofan fyrir partýið

spari skápurinn sem hýsir sparistellið 

bollan klár og allt að verða ready 

komin i dressið. Bolur(samfella) frá BikBok og pils frá HM en skipti svo á síðustu stundu um pils og var svo í svörtu pilsi í staðin hehe

ótrúlega ánægð með fínu fínu skóna mína

Röltu niður í bæ á menningarnótt með Önnu Kristínu á meðan við gúffuðum í okkur ís :)
Skellti mér síðan í Volvo hitting með fjölskyldunni hans Davíðs. Á myndinni fyrir neðan eru Volvo bílar fjölskyldunnar :)

Flott eru þau öll 

Síðar um kvöldið fór ég á tónleika með Einari Daða og Hjalta á Kex Hostel með Russel Crowe og Alan Doyle. Þeir voru betri en ég bjóst við.  

Svo mætti hin eina sanna Patti Smith

og söng með fellunum Because the night og ég söng hástöfum með allan tímann

Crowinn að spila á gítarinn sinn - kunni samt bara nokkur einföld grip, Alan var betri á gítargripinn :)

En þetta var æðisleg helgi. Nú er það bara skólinn á fullu og svo þarf ég að fara að fá gesti í fínu fínu íbúðina :) 

Svo ætlum við Davíð að skella okkur á Geirmundarball í sveitinni 31.ágúst og get ég fullyrt að ég er orðin vel spennt :)

Þangað til næst - Jóhó


Thursday, August 16, 2012

Loksins Loksins komin heim

Jæja nú er ég loksins komin heim á klakann í nýju fínu íbúðina okkar Davíðs. Ég kom heim sunnudaginn 12.ágúst en var búin að segja vel flestum að ég myndi koma heim þann 14.ágúst. Ég kom mömmu og Davíð svo sannarlega á óvart og náði svo að fara í afmæli til ömmu sem var frábært.

Á mánudeginum fór ég svo á skurðstofuna í Fossvoginum þar sem ég átti eftir að klára einn dag í skurðverknáminu og það var geggjað. Hitti Elnu hjúkkuvinkonu þar og bara gaman.

En þegar ég var að pakka fötunum mínum tók Elva Rún myndir af öllu því nýja sem ég keypti mér þannig þið megið búast við myndaflóði.

Svo er allt að koma til í nýju íbúðinni. Fékk fullt af eldshúsgræjum frá bæði Pabba og líka Ömmu Laugu. Ég hendi svo inn myndum við tækifæri þegar íbúðin er orðin klár eða svona hérum bil

Skartið sem fjárfest var í ferðinni 

Maður varð að fá sér Ben and Jerrys áður en maður fór heim 

Ótrúlega góð ber keypt beint frá bónda. Heita bringuber í Noregi og eru mjög svipuð og hindber í laginu, en ég veit ekki hvort þau smakkast eins þar sem það er svo langt síðan ég fékk mér hindber 

Öll herlegheitin sem keypt voru í Norge

Fyllti alveg heilt rúm, mamma og Davíð verða kannski ekki alveg sátt hehe 


Kjólarnir úr H&M og Bik Bok. Kjóll númer 1,4 og 6 eru úr H&M en hinir úr Bik Bok 

Pils sem ég keypti. nr. 1 og 3 eru úr H&M og það í miðjunni úr Gina Tricot

jakkar. Fyrsti úr Gina Tricot en hinir úr H&M

Skyrturnar. Skyrta nr. 3 er úr Vero Moda en hinar úr Cubus

Svo keypti ég mér peysur. Keypti svona ekta norska peysu, og svo líka hlýjar peysur fyrir veturinn

Nokkrar litaðar gallabuxur - og þessar gulu voru eiginlega spes keyptar fyrir Tinnu, Önnu Mjöll, Önnu Kristínu og Hafdís. 

Hælaskórnir sem voru keyptir. 

Þar sem það var svolítið verslað þurfti að fjárfesta í nýrri ferðatösku og auðvitað varð bleik taska fyrir valinu. 

Við systur að pakka :)

Komin á flugvöllinn með töskurnar mínar 

Ready að fara heim til Íslands

Splæsti sér í eitt gott rauðvínsglas



Hér er svo myndband af mömmu þegar ég kem henni á óvart - það er reyndar á hlið og ég næ ekki að snúa því 

En ég er svona að spá hvort ég eigi að halda áfram með þetta blogg víst ég er komin heim ! Það fer alveg eftir því ef fól´k nennir ennþá að lesa hehe - þannig mér þætti mjög vænt um ef þið mynduð segja ykkar skoðun eða láta mig vita ef ég ætti að halda áfram - það væri vel þegið :) 

Jóhanna Sigríður



Sunday, August 5, 2012

Síðasta vikan í Norge

Jæja nú fer heldur betur að styttast í að ég komi heim og ég get ekki beðið eftir að hitta alla.

Á miðvikudaginn í síðustu viku fór ég með litlu systur í bæinn og við skoðuðum okkur um og ég bauð henni í Lunch, stóra systir er nú alveg frábær hehe. Keypti ég mér svona norska ullarpeysu, en mér fannst alveg nauðsynlegt að eiga eitt stykki þannig

Peysan se ég keypti er mjög svipuð þessari nema hún er hneppt alveg niður og er hún alveg æði

Elva með samlokuna sína :) og systirin fær svona eina grettu fyrir myndavélina 


En núna á fimmtudaginn hitti ég Hrefnu dökku í Sandnes og við skelltum okkur í cupcakes gerð. Það dugði ekkert meira en hafa 4 kremtegundir á cupcakesið okkar :) 

Grænukökurnar eru með karamellukremu
Bleiku eru með einhversskonar tropikal bragði 
Bláu með coconut bragði 
Ljósakremið er með kaffibragði 
Loksins náði ég að læra að gera rós og er það meira segja hægt að gera með einum stúti sem ég á. En nú gæti ég sagt að ég sé búin að ná ágætum tökum á muffinsgerðinni
En uppskriftin er sama uppskrift og ég hef verið að nota þegar ég geri muffins svo þið getið fundið það neðar í blogginu mínu

Með kókoshnetubragði

með karamellubragði

Rósin með tropicalkremi en smá úr fókussamt 

Smá hjónabandssælufýlingur í þessari 

En næsta vika einkennist af vinnu og svo að hitta þá sem ég þarf að kveðja. En ég þarf nú að kveðja Hrefnurnar mínar :) 

En í dag 5.ágúst er ég og Davíð búin að vera saman í 3 ár. Við erum búin að upplifa ótrúlega margt saman. Tyrklandsferðin á Marmaris þar sem allt gerðist !! Að upplifa útskriftarárið í 6.bekk saman. Hittumst í Þýskalandi í 1 dag þegar ég og Tinna tókum smá Evrópurúnt 2010. Skella okkur til New York í ágúst 2011. Davíð kom svo í heimsókn hingað til mín til Stavangurs.  Við erum búin að skella okkur í margar útilegur, gista á Hótelum út á landi, fara oft út að borða og í raun eiga ógleymanlegar stundir saman. 
Nú er svo stóra stundin þar sem við erum að flytja saman og get ég ekki beðið eftir að komast í kotið okkar og sjá svona í alvöru hvað hann Davíð er búinn að gera fínt. 
En Davíð er algjörlega mín stoð og stytta og er ekki hægt að hugsa sér betri kærasta. 

Elska hann :*

Hlakka til að hitta ykkur öll, sjáumst eftir 9 daga 

Ykkar Jóhanna ....

og Elva Rún vill líka fá að vera með